Vefverslun
Bróðir Svartúlfs (2009)
Frumraun Bróðir Svartúlfs kom út þann 20. október 2009 og telst hún til svokallaðra EP-platna (eða stuttskífa á góðri íslenskri tungu). Platan var tekin upp í júní sama ár í Sundlauginni í Mosfellsbæ fyrir utan eitt lag sem var tekið upp í Tankinum á Flateyri. Öll eftirvinnsla fór þó fram í Sundlauginni.
Drengirnir sáu sjálfir um útgáfu verksins en Record Records sá um dreifingu.
| Lag | Lengd | |
|---|---|---|
| Gullfalleg Útgáfa Af Forljótum Náunga | 5:37 | |
| Úldnir og Ormétnir Ávextir Erfiðis | 3:15 | |
| Rólan Sveiflast Enn | 5:16 | |
| Augun | 4:32 | |
| Fyrirmyndarveruleikaflóttamaður | 4:21 | |
| Alinn Upp Af Úlfum | 3:47 |


