Airwaves!

Loksins! Partý! Drykkja! Tónlist! Bróðir Svartúlfs! Hundrað aðrir frábærir listamenn! Fallegt kynlíf! Ógeðslegt kynlíf! Hamingja! Samviskubit! AAAAIRWAVES!
Í ár munum við koma fram í tveimur ólíkum útsetningum: annarsvegar rafmagnaðir eins og við erum hvað frægastir fyrir en hins vegar akústik ásamt undrabarni á harmonikku. Við verðum með glænýtt efni í bland við það gamla góða og erum við ótrúlega spenntir fyrir því að deila þessum augnablikum með YKKUR! Bravó!
________________________________
THURSDAY 14th of Oct!
MAIN VENUE (Wristband needed)
WHERE: Faktorý!
WHEN: 20:20 / 08:20 PM
WITH WHO: Cities between us (IS), Poetrix (IS), Polipe (CA), Yunioshi (UK) and Film (GR)
WHATSUP: Rokk og ról á Faktorý! Það er von á nekt, svita og látum eins og alltaf á Faktorý!
________________________________
FRIDAY 15th of Oct!
OFF VENUE!
WHERE: Nordic House!
WHEN: 16:00 / 04:00 PM
WITH WHO: Hjálmar (IS), Alcoholic Faith Mission (DK) and Marius (FO)
WHATSUP: Persónulegt og rómantískt, akústik og þjóðlegur harmonikkuleikari með í för. Við erum óskaplega stoltir með að koma fram á þessum tónleikum ásamt þessum listamönnum. Þetta verða mjög persónulegir tónleikar, showið verður ljóðrænna en gengur og gerist og mælum við með því að sem flestir láti sjá sig á þessum einstaka viðburði.
________________________________
SATURDAY 16th of Oct!
OFF VENUE!
WHERE: Dillon Rockbar!
WHEN: Enn óljóst.
WITH WHO: YKKUR!
WHATSUP: Hvar er hægt að rokka meira en nákvæmlega á fokking dillon? Nowhere, that's where. Hér myndast þrengsta og sveittasta stemning landsins. Í fyrra gátum við varla hreyft okkur fyrir fólki og skrímslum en samt varð þetta einn af hápunktum hátíðarinnar. Í ár verður leikurinn endurtekinn nema hvað hann verður grófari og blóðugri. Það er loforð.
________________________________
Vonandi sjáum við ykkur sem flest þessa bestu daga íslenska ársins. Fréttir herma að það megi finna okkur með hljóðfærin með í för á götum úti á meðan að á hátíðinni stendur, en það er bara orðrómur. Hafið samt augun opin á meðan þið gangið um miðbæ Reykjavíkur. Hver veit hvað þið getuð rekist á.
Endilega hitið ykkur upp með því að hlusta á nýútgefna lagið okkar, 'Velkomin':
http://soundcloud.com/brodir-svartulfs/brodir-svartulfs-velkomin
http://www.gogoyoko.com/#/album/Velkomin_Single
Sjáumst elsku vinir!
Ást og kossar,
Bróðir Svartúlfs


