background image

Nýr síngúll: Velkomin!

2010-10-09

 
Elsku vinir! Nú á dögunum vorum við að skila af okkur fyrstu smáskífunni af komandi breiðskífu. Það er ekki kominn neinn fastur útgáfudagur en ef fram fer sem horfir verður allt klappað og klárt um mitt næsta ár.  Við höfum verið nokkuð hljóðlátir seinustu mánuði og fannst því tilvalið að senda frá okkur eitt lag í tilefni þess að lífið er gott, prýðilega gengur að semja nýtt efni og öll okkar mál eru að komast á hreint. Við erum all in, baby. 

Við höfum verið að spila þetta lag á tónleikum í allt sumar, minnir að það hafi verið frumflutt á Músíktilraunum í vor þegar Of Monster and Men hrifsaði bikarinn af okkur. Upptökur fóru annars vegar fram í Hljóðmúla, en þar æfum við einmitt, og hins vegar í Tóney. Um upptökur sá hæstvirtur Tóti úr Agent Fresco en hann stjórnaði okkur með harðri hendi og flengdi okkur með vendi ef við vorum erfiðir. Guð blessi hann. 
Lagið er einnig komið í vefverslun gogoyoko á vangefnu klinktilboði: Kaupa 'Velkomin'