Videoblog #1: Dátinn Akureyri

Hæ elskurnar.
Seinasta föstudag skruppum við til Akureyrar og spiluðum á Dátanum ásamt Hælsæri og Ugly Alex. Það var vel mætt, stemningin var góð, hendin á mér sprakk í tætlur, Kaldi gaf okkur bjór, King Kong var í sjónvarpinu og á Kaffi Karólínu voru tilboðin söguleg. Eitt stóð þó upp úr og var það hugmyndin sem við fengum um að gera videoblog í tilefni þess að Fúsi keypti sér ágætis myndavél.
Afrakstur erfiðisins má sjá hér til hliðar (hægri) í vasaútgáfu, en ef smellt er á Videoblog hér hinumegin (vinstri) má nálgast það í öllu sínu veldi.
Eins og kemur fram í blogginu sjálfu mun þetta verða nokkuð fastur liður. Við erum býsna ánægðir með árangurinn enda krafðist þetta mjög lítillar vinnu en ég sé fram á að með tímanum verði bloggin bara betri. Hljóðið er vissulega ekki fullkomið en þvívíddin er kúl og vil ég þakka samvinnu James Cameron og Fúsa fyrir það.
ps. Við munum spila á Sjónvarpslausu fimmtudagskvöldi næsta fimmtudag. Endilega kynnið ykkur það nánar >HÉR<. Þetta verður gott.


